býður bóklegt og verklegt nám á mörgum námsbrautum. Nemendur eru um það bil 700 talsins, þar af um helmingur á stúdentsbrautum, um fjórðungur á iðnbrautum og fjórðungur á öðrum námsbrautum. Boðið er upp á fjarnám með staðbundnum lotum í húsasmíði og á viðskiptabraut. Kennslan er sniðin að þörfum fullorðinna nemenda sem stunda vinnu með skóla. Dugmiklir nemendur eiga þess kost að ljúka stúdentsnámi á skemmri tíma en fjórum árum. Í nokkrum greinum er nemendum skipt í hópa eftir árangri á grunnskólaprófum þannig að þeir sem hafa bestan undirbúning fara í hraðferð með öðrum nemendum sem standa sig vel í námsgreininni. Þeim sem á þurfa að halda býðst fornám og stuðningur á almennri braut. Með því að bjóða misþunga áfanga og mismikinn námshraða kemur skólinn bæði til móts við þá sem hafa vilja og getu til að ljúka miklu námi á skömmum tíma og þá sem hafa meira gagn af hægari yfirferð
Nemendafélag skólans, NFFA, heldur uppi mjög fjölbreyttu og kraftmiklu félagslífi; Leiklist, tónlist, klúbbar, íþróttir, ferðir, dansleikir, kaffihúsakvöld, árshátíð.
Fjölbrautaskóli Vesturlands býður nemendum góða aðstöðu til náms og félagsstarfa. Vingjarnlegt viðmót, persónuleg samskipti. Öflug námsráðgjöf og skipulegt forvarnastarf. Hver nemandi hittir umsjónarkennara sinn vikulega. Gott bókasafn og góð vinnuaðstaða. Greiður aðgangur að tölvum og þráðlaust net fyrir fartölvur um allan skólann. Skólabíll úr Borgarnesi og strætisvagn úr Mosfellsbæ. Hægt er að samþætta nám í skólanum íþróttaæfingum og námi í tónlistarskóla. Mötuneyti er öllum opið og heimavist rúmar 64 nemendur.