-
Námsleið: Starfsnám
Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef
menntamálaráðuneytisins og vef
Iðunnar fræðsluseturs.
-
Námsbraut: Heilbrigðis- og félagsgreinar
Námslína: Tanntæknabraut
Námið býr nemendur undir að vinna ýmis aðstoðarstörf á tannlæknastofum, s.s. við tannlæknastól, bókanir, sótthreinsun o.fl. Meðalnámstími er tvö og hálft ár, þar af þrjár annir í skóla og tveggja anna starfsnám við Tannlæknadeild Háskóla Íslands. Starfsheiti aðstoðarmanna tannlækna er lögverndað.
Upplýsingar skóla um námið
Námsbraut aðstoðarfólks tannlækna tók til starfa á haustdögum árið 1991. Kennsla við námsbrautina hófst á vorönn 1992. Fyrstu nemendurnir voru útskrifaði á haustönn 1992.
Aðstoðarfólk tannlækna fékk starfsheiti sínu breytt í Tanntæknar á tuttugasta afmælisári félags aðstoðarfólks tannlækna.
Markmið náms á tanntæknabraut er að þjálfa nemendur í að vinna ýmis aðstoðarstörf tannlæknaþjónustu, að efla yfirsýn nemenda og auka samskiptahæfileika þeirra einnig að efla færni nemenda í höndum.
Tanntæknanám er viðurkennd starfsmenntun og hljóta nemendur löggildingu að henni lokinni skv. Reglugerð Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.
Upplýsingar skóla um inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði. Til að komast að í tanntæknanámið þarf grunnskólapróf. Þeir nemendur sem lokið hafa meira námi en grunnskólaprófi eru sérstaklega metnir inn. Fjöldi nemenda í verklegum hluta námsins hverju sinni er 12 einstaklingar. Í verklega námið eru nemendur aðeins teknir inn einu sinni á ári. Til þess að hefja verklegan hluta námsins þarf nemandi að hafa lokið öllum bóklegum greinum sem krafist er og að hafa auk þess náð 18 ára aldri.
Lengd náms og einingar
Annir: frá 4 til 6
Einingar: 89
Námsgerð í boði:

Dagskóli

Fjarnám

Blandað nám
Tengiliður náms:
Kristrún Sigurðardóttir kennslustjóri
run@fa.is
http://www.fa.is/heilbrigdisskolinn/tanntaeknabraut/