+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Ármúla 12
108 Reykjavík

Sími: 581 4022
Bréfasími: 568 0335
fa@fa.is
http://www.fa.is/
Skólameistari
Gísli Ragnarsson
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

-
Námsleið: Starfsnám

Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef menntamálaráðuneytisins og vef Iðunnar fræðsluseturs.

-
Námsbraut: Heilbrigðis- og félagsgreinar

Heilbrigðis- og félagsgreinar

 
Námslína: Heilbrigðisritarabraut

Námið býr fólk undir störf heilbrigðisritara við móttöku sjúklinga, skráningu gagna, gjaldkerastörf  og almenn skrifstofustörf á heilbrigðisstofnunum eða fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu. Meðalnámstími er um tvö og hálft ár, þar af fjögurra anna nám í skóla og 12 vikna vinnustaðanám.

Upplýsingar skóla um námið

Meginmarkmið námsins er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem heilbrigðisritarar inna af hendi við móttöku sjúklinga, skráningu gagna, gjaldkerastörf  og almenn skrifstofustörf. Meðalnámstími er um tvö og hálft ár, fjögurra anna nám í skóla, samtals 68 einingar, og vinnustaðanám á heilbrigðisstofnunum eða hjá fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu sem metið er til 12 eininga.

Upplýsingar skóla um inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði til náms á heilbrigðisritarabraut eru að nemendur hafi lokið skyldunámi í samræmi við ákvæði aðalnámskrár grunnskóla og einnig lokið samræmdum lokaprófum í íslensku og stærðfræði og náð tilskildum lágmarksárangri skv. ákvæðum reglugerðar um innritun nemenda í framhaldsskóla.  Ennfremur er miðað við að nemendur hafi náð 18 ára aldri þegar þeir hefja vinnustaðanám á heilbrigðisstofnunum og hjá fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu.

Lengd náms og einingar

Annir: frá 4 til 6
Einingar: 80

Námsgerð í boði:

Dagskóli
Fjarnám
Blandað nám

Tengiliður náms:

Kristrún Sigurðardóttir kennslustjóri
run@fa.is

http://www.fa.is/heilbrigdisskolinn/hjukbraut/
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir