Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ er nýr framhaldsskóli sem hóf starfsemi haustið 2009. Skólinn er starfræktur í Brúarlandi í Mosfellsbæ til bráðabirgða, en áætlað er að nýtt hús fyrir skólann verði tekið í notkun á árinu 2013. Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ hefur verið valinn af menntamálaráðuneytinu til þess að vera einn af fyrstu framhaldsskólum landsins til þess að starfa eftir nýjum lögum um framhaldsskóla. Í lögunum er töluvert frelsi bæði fyrir skóla og nemendur til þess að setja saman nám, hvort sem það er til stúdentsprófs eða annarra lokaprófa.
Skólinn leggur áherslu á að bjóða nemendum metnaðarfullt nám við hæfi hvers og eins, á stúdentsbrautum, stuttum námsbrautum og almennum brautum. Hugmyndafræði og kennsluhættir skólans einkennast af því að nemendur eru virkir þátttakendur í eigin námi, öðlast sjálfstæði og stjórna námshraða sínum með góðum stuðningi kennara og námsráðgjafa.
Notaðar eru fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og námsmat sem er stöðugt í gangi og miðast við hugmyndir um leiðsagnarmat. Upplýsingatæknin er notuð til að auka fjölbreytni í skólastarfinu og fyrir utan námsefni í kennslubókum er allt námsefni, áætlanir og upplýsingar aðgengilegt í gegnum kennslukerfi á netinu.
Stundatafla nemenda er sveigjanleg þannig að nemendur stjórna hluta af tíma sínum sjálfir. Kennsluhættir eru því fjölbreyttir og hluti af náminu fer fram undir verkstjórn kennara en annar hluti námsins fer þannig fram að nemendur stjórna sjálfir hvort þeir vinna sjálfstætt eða leita aðstoðar hjá kennurum og í hvaða námsgrein þeir leita aðstoðar.
Góð vinnuaðstaða er í skólanum og stefnt er að því að skóladagurinn verði sem næst því að vera heildarvinnudagur nemandans þannig að hann geti lokið verkefnavinnu sinni að mestu leyti áður en haldið er heim á leið.
Lögð er áhersla á að byggja upp öflugt félagslíf nemenda þar sem allir nemendur geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ leggur áherslu á að vera í góðum tengslum við umhverfi sitt, bæði hvað varðar listir og menningu, íþróttir og lýðheilsu og annað það sem einkennir mannlíf í Mosfellsbæ.