Nám til stúdentsprófs er skipulagt sem undirbúningur að námi á háskólastigi. Stúdentsprófið eitt og sér tryggir þó ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi, hvorki hér á landi né í öðrum löndum. Einstakir háskólar eða háskóladeildir setja ýmsar sérkröfur sem nemendur þurfa einnig að uppfylla og í sumum tilvikum þurfa nemendur að gangast undir inntökupróf, t.d. í læknadeild og þeir sem sækja um listaháskóla þurfa oft að skila möppu með verkum sínum. Nauðsynlegt er fyrir nemendur sem stefna að inngöngu í tiltekinn skóla á háskólastigi að afla sér áreiðanlegra upplýsinga um þær kröfur sem viðkomandi skóli gerir um undirbúning.
Nýju framhaldsskólalögin kveða svo á að í kjarna á stúdentsprófsbrautum séu 45 nýjar einingar í íslensku, ensku og stærðfræði. Skólar og nemendur ráða að öðru leyti miklu um hvaða greinar er boðið upp á. Auglýst verður sérstaklega ef einhver skóli býður upp á nám með nýju skipulagi.
Viðskiptabraut - hagfræðisvið
Boðið er upp á tvö mismunandi svið: viðskiptasvið og hagfræðisvið. Áhersla er lögð á viðskiptagreinar og aðrar skyldar greinar þannig að nemendur geti haldið áfram námi í háskóla, í sérskólum á háskólastigi eða farið út á vinnumarkaðinn að loknu stúdentsprófi.
Áfangar:
Íslenska ÍSL102, 202, 212, 303, 403, 503
Stærðfræði STÆ103, 203, 303, 313, 403, 503, 603
Danska DAN102, 202, 212
Enska ENS102, 202, 212, 303, 403, 503
Þriðja mál ÞÝS/FRA/SPÆ 102, 202, 212, 303, 403
Þjóðhagfr. + fél. ÞJÓ113 202, 302
Rekstrarhagfræði REK103, 213, 313
Bókfærsla BÓK113, 201, 213, 313
Saga SAG103, 203, 303
Náttúruvísindi NÁT103, 113, 123
Lífsleikni LKN101, LKN121
Tölvunotkun TÖN102, 202, 302
Véritun VÉL101
Fjármál FJÁ102, FJÁ202
Lögfræði + fél. LÖG103
Íþróttir ÍÞR101, 111, 201, 211, 301, 311, 401, 411
Frjálst val 6 einingar
Umsóknir verða afgreiddar eftir þeirri röð sem meðaltal skólaeinkunna í fjórum greinum segir til um. Greinarnar eru: íslenska, stærðfræði, sem hafa tvöfalt vægi, og tvær til viðbótar, danska (eða annað Norðurlandamál), enska, náttúrufræði eða samfélagsfræði. Nemendur verða að hafa náð að lágmarki 6,0 í einkunn í hverri grein. Bent skal á að nám við Verzlunarskólann er kröfuhart og reynslan sýnir að nemendum með einkunn undir 7,0 í íslensku og stærðfræði hefur ekki vegnað vel í skólanum.
Þá verður ákveðinn fjöldi nemenda tekinn inn á grundvelli annarra þátta. Þar verður m.a. litið til þess úr hvaða grunnskóla nemendur koma, einkunna í öðrum greinum, hvort nemendur hafi lokið framhaldsskólaáföngum, mætingu o.fl. Einnig er það stefna skólans að reyna að hafa hlutfall kynja sem jafnast. Nefnd innan skólans mun fara yfir þessa þætti.
Dagskóli
Fjarnám