-
Námsleið: Starfsnám
Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef
menntamálaráðuneytisins og vef
Iðunnar fræðsluseturs.
-
Námsbraut: Snyrtigreinar
Námslína: Hársnyrtiiðn
Löggilt iðngrein. Markmið námsins er að gera nemendum kleift að öðlast þá þekkingu og færni sem krafist er til starfa í greininni. Meðalnámstími er fjögur ár og skiptist í fimm annir í skóla og 72 vikna starfsþjálfun. Náminu lýkur með sveinsprófi.
Upplýsingar skóla um námið
Almennar bóklegar greinar 24 ein.
Erlend tungumál ENS 102 DAN 102 + 4 ein. 8 ein.
Íslenska ÍSL 102 202 4 ein.
Lífsleikni LKN 103 3 ein.
Stærðfræði STÆ 102 122 4 ein.
Íþróttir ÍÞR 101 201 301 401 501 5 ein.
Sérgreinar 72 ein.
Blástur BLÁ 101 201 301 401 501 5 ein.
Háralitun HLI 101 202 3 ein.
Hárgreiðsla HGR 103 203 303 402 503 14 ein.
Hárþvottur og snyrting HÞS 101 1 ein.
Iðnfræði IFH 102 202 302 401 501 8 ein.
Iðnteikning ITH 102 202 302 6 ein.
Klipping KLP 103 202 303 403 503 14 ein.
Líffæra- og lífeðlisfræði LOL 103 3 ein.
Líffræði NÁT 103 3 ein.
Permanent PEM 102 202 302 402 502 10 ein.
Skeggsnyrting og rakstur RAK 102 201 3 ein.
Þjónustusiðfræði ÞSF 101 1 ein.
Öryggis-og félagsmál ÖRF 101 1 ein.
Starfsþjálfun 72 vikur 72 ein.
Samtals 168 ein.
Verklegar faggreinar eru samþættar í kennslu undir áfangaheitunum HSV 159I HSV 259I, HSV 35BM, HSV 45AK og HSV 55BM.
Lengd náms og einingar
Annir: frá 8 til 12
Feiningar: 168
Námsgerð í boði:

Dagskóli
Tengiliður náms:
Ragnheiður Bjarnadóttir Skólastjóri Hársnyrtiskólans
rab@tskoli.is
5149181
http://www.tskoli.is/skolar/harsnyrtiskolinn/