+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Myndlistaskólinn í Reykjavík

Myndlistaskólinn í Reykjavík
Hringbaut 121
107 Reykjavík

Sími: 551 1990
Bréfasími: 551 1926
mynd@myndlistaskolinn.is
http://www.myndlistaskolinn.is
Skólameistari
Ingibjörg Jóhannsdóttir
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

Myndlist, hönnun, keramik og mótun, ljósmyndun ofl.

Markmið Myndlistaskólans í Reykjavík er að efla grunnmenntun á sviði sjónlista og að miðla sem best þekkingu í verklegum og fræðilegum þáttum til nemenda.  Í boði eru grunn- og framhaldsnámskeið á ýmsum sviðum og miðast mæting oftast við eitt skipti í viku.
Við upphaf náms er öllum nemendum skólans ráðlagt að byrja á grunnnámskeiðum í teikningu en teiknikunnátta er undirstaða allrar frekari menntunar á þessu sviði. Námskeiðin eru ýmist eins eða tveggja anna.
Við námskeiðslok fær nemandinn staðfestingu um þátttöku sína og ástundun. Nám við skólann er í flestum tilvikum metið til eininga innan framhaldsskólakerfisins sé það stundað með fullnægjandi hætti en lágmarksmæting er 80%.
Við Myndlistaskólann í Reykjavík er einnig starfrækt á framhaldsskólastigi fullt nám í dagskóla: Myndlistar- og hönnunarsvið.

Myndlist, hönnun, keramik og mótun, ljósmyndun ofl.

Myndlistaskólinn í Reykjavík er sjálfseignarstofnun sem er rekinn af myndlistarmönnum. Skólinn er viðurkenndur af menntamálaráðuneyti sem einkaskóli á framhaldsskólastigi, í gildi er þjónustusamningur um kennslu milli skólans og ráðuneytisins. Skólinn var stofnaður árið 1947 og hefur starfað óslitið síðan. Skólinn er fagskóli á sviði sjónmennta, við hann kenna myndlistarmenn og hönnuðir sem veljast til starfa á grundvelli menntunar og listræns ferils.

1. Framhaldsskólastig / undirbúningur fyrir nám á háskólastigi;
Myndlista- og hönnunarsvið (Dagskóli/FULLT NÁM),
Keramik kjörsvið (Dagskóli/FULLT NÁM).
Kennt er í samræmi við námskrá framhaldsskóla og námskeið. Um er að ræða áfanga á framhaldsskólastigi og símenntun fyrir eldri an 16 ára. Námið nýtist sem grunnur að áframhaldandi námi, til uppbyggingar tómstundastarfs og til að dýpka listskynjun og þekkingu á listum.

2. Diplómanám;
MÓTUN-leir og tengd efni, TEIKNING og TEXTÍLL

Bookmark and Share
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir