-
Námsleið: Starfsnám
Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef
menntamálaráðuneytisins og vef
Iðunnar fræðsluseturs.
-
Námsbraut: Uppeldis- og tómstundagreinar
Námslína: Leiðbeinendur í leikskólum
Brautin er fyrir leiðbeinendur í leikskólum. Markmið námsins er að búa nemendur undir störf á leikskólum þar sem þeir starfa við hlið annars faglærðs starfsfólks að umönnun, uppeldi og menntun barna á aldrinum eins til sex ára. Meðalnámstími er fjórar annir í skóla að meðtöldu námi á skólaliðabraut og níu vikna starfsþjálfun á leikskóla.
Lengd náms og einingar
Annir: frá 4 til 4
Einingar: 71
Námsgerð í boði:

Dagskóli