Markmið hestafræðibrautar er að veita fagmenntun á sviði hrossaræktar, tamninga, reiðmennsku og reiðkennslu og að vinna að þróun og nýsköpun með rannsóknarstarfsemi. Með þessum hætti verði stuðlað að aukinni arðsemi í atvinnugreininni, útbreiðslu hestamennskunnar og velferð hestanna. Deildin er alþjóðleg miðstöð menntunar og rannsókna á sviði hrossaræktar, tamninga, reiðmennsku
Nemandinn öðlist sérhæfða og hagnýta þekkingu á líffræði, ræktun og meðferð hesta. Einnig þekkingu á landnýtingu og rekstri í atvinnugrein-inni. Mikil áhersla er lögð á fræðilega þekkingu og verklega færni í notkun hestsins, grunnreiðmennsku, þjálfun gangtegunda og í fyrstu stigum reiðkennslu.