Löggilt iðngrein. Markmið námsins er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem rennismiðir fást við, þ.e. uppbyggingu og viðhald véla, kælikerfa og loftstýringa, bilanaleit og stýringar. Meðalnámstími er fjögur ár að meðtöldu grunnnámi, samtals sex annir í skóla og 60 vikna starfsþjálfun. Náminu lýkur með sveinsprófi.