Flugvirkjun er löggilt iðngrein og námið tekur allt að fimm árum. Ekki er unnt að stunda bóklega þátt námsins hér á landi, en margir erlendir skólar bjóða upp á nám í flugvélavirkjun samkvæmt reglugerðum (JAR 147 og JAR 66) sem settar eru af Flugöryggissamtökum Evrópu (JAA) og Ísland er aðili að. Þeir sem lokið hafa námi frá JAR 147 viðurkenndum skóla, og jafnframt hafa lokið verklegu námi í iðninni, geta sótt um að gangast undir sveinspróf sem haldið er á vegum menntamálaráðuneytisins.
Flugmálastjórn hefur með höndum skírteinisútgáfu flugvéltækna samkvæmt JAR 66 en það veitir frekari heimildir og gildir auk þess víðast hvar í Evrópu og annarsstaðar í heiminum.