Markmið náms á listnámsbraut er að leggja grunn að frekara námi í listgreinum í sérskólum eða í skólum á háskólastigi. Námið greinist í kjarna, kjörsvið og frjálst val nemanda. Nám í kjarna er sameiginlegt öllum nemendum brautarinnar. Kjörsvið felur í sér sérhæfingu í þeirri list- eða hönnunargrein sem nemandi velur sér: almenn hönnun, fata- og textílhönnun, fjölmiðlatækni, keramikhönnun, kvikmyndir, listdans, margmiðlunarhönnun, myndlist, og tónlist. Námið fer annaðhvort fram í viðkomandi framhaldsskóla eða viðurkenndum listaskóla.
Listnámsbraut er skipulögð sem þriggja ára námsbraut og útskrifast nemendur með listnámsbrautarpróf. Nemendur sem óska að ljúka stúdentsprófi geta bætt við sig námi í völdum bóklegum greinum og aflað sér þannig almennari réttinda til náms á háskólastigi.
Með námi í Keramikhönnun er lagður grunnur að frekara námi í keramiki í sérskólum eða í skólum á háskólastigi á sviði myndlistar eða hönnunar. Keramik telst til handverkshönnunargreina þar sem lögð er sérstök áhersla á að efla efnisþekkingu og vinnubrögð í fjölbreyttu samhengi lista og listhandverks. Áhersla er lögð á skapandi hugmyndavinnu og aðferðir til að koma eigin hugmyndum í framkvæmd.