Í aðalnámskrá framhaldsskóla – almennum hluta 2004 – er að finna reglur og ákvæði um réttindi og skyldur nemenda. Hér á eftir eru birt ýmis ákvæði og undanþágur sem er að finna í aðalnámskrá.
Nemendum með fötlun og nemendur með lesröskun (lestrar- og skriftarörðugleika) og/eða aðra staðfesta skynjunarörðugleika geta sótt um undanþágu frá einstökum námsáföngum til skólameistara enda sé fullreynt að mati skóla að nemandinn geti ekki náð tökum á námsefninu vegna skilgreindra annmarka sem sérfræðingur á viðkomandi sviði hefur staðfest. Nemendur skulu þó taka aðra áfanga í stað þeirra sem þeir fá undanþágu frá. Nemendum er heimilt að framvísa margvíslegum gögnum frá grunnskóla sínum eða sérfræðingum sem geta stuðlað að því að þeir fái viðeigandi úrræði í þeim framhaldsskóla sem veitir þeim skólavist.
Nemendur geta einnig sótt um undanþágu til skólameistara frá einni námsgrein ef þeir eiga við það mikla námsörðugleika að stríða að þeir geta ekki náð tökum á námsefninu þrátt fyrir endurteknar tilraunir og þrátt fyrir sérstaka aðstoð frá viðkomandi skóla. Slíkir námsörðugleikar skulu staðfestir af sérfræðingi á viðkomandi sviði. Nemendur sem fá undanþágu samkvæmt þessu skulu þó taka aðra grein í staðinn og undanþáguheimildar skal getið á prófskírteini.
Nemendur, sem hafa annað móðurmál en íslensku, og íslenskir nemendur, sem hafa dvalið lengi erlendis og geta þar af leiðandi haft takmarkaðan hugtakaskilning þótt þeir tali daglegt mál ágætlega, geta sótt um að stunda nám í íslensku samkvæmt sérstakri námskrá sem ætluð er þessum nemendum. Sama gildir um heyrnarlausa nemendur. Skólar hafa víðtækar heimildir til þess að koma til móts við einstaklingsbundnar þarfir þessara nemenda.
Hafi viðkomandi nemandi dvalið utan Norðurlanda getur hann sótt um að taka annað tungumál í staðinn fyrir Norðurlandamál.
Nemendur sem fengið hafa undanþágu frá námi í Norðurlandamáli í grunnskóla geta einnig fengið undanþágu frá Norðurlandamáli í framhaldsskóla. Þeir skulu þó taka aðra grein í staðinn og skal þess getið á prófskírteini.
Áður en undanþága er veitt skal skólameistari gera nemendum grein fyrir því að undanþágan gæti skert möguleika þeirra til náms í skólum á háskólastigi eða möguleika til starfa á viðkomandi starfssviði ef um starfsnám er að ræða.
Framhaldsskóli skal koma til móts við afreksíþróttafólk á þann hátt að fjarvera þess á námstíma, vegna keppnis- og/eða æfingaferða landsliðs í viðkomandi íþróttagrein, reiknast ekki inn í skólasóknareinkunn nemandans.
Nemandi, sem stundar umfangsmikla líkamsþjálfun á vegum sérsambands og/eða íþróttafélags, undir stjórn sérmenntaðs þjálfara, íþróttafræðings eða kennara, samhliða námi í framhaldsskóla, getur óskað eftir því að skólameistari veiti honum undanþágu frá vissum áföngum eða áfangahlutum í íþróttum, líkams- og heilsurækt.